Valmöguleikar
 Forsíða
 Fréttir
 Vilhelm Steinsen
 Þóra Guðnadóttir
 Senda póst
 Óska eftir tilboði
 Sérsvið og reynsla
 Gæðastýring
 - - - - - - -
 English
 Français
 Deutsch

Forsíða arrow Sérsvið og reynsla

Sérsvið og reynsla   PDF  Prenta  Senda 

Sérþekking starfsmanna Þýðingastofunnar byggir ekki aðeins á háskólanámi í tungumálum og dvöl erlendis, heldur einnig á víðtækri reynslu af að þýða nytjatexta af margvíslegum gerðum. Þar má nefna samninga, reglugerðir og lög, handbækur fyrir hvers konar tæki og búnað, allt frá geislavirkum kornum til ígræðslu í menn til grjótmulningsvéla af stærstu gerð, texta um lyf og lækningar, texta um flug og flutninga, einnig hugbúnað fyrir bókhald og ýmis önnur viðskiptaforrit.

Þýðingastofan í Reykjavík hefur reynslu af að stjórna hnattrænum verkefnum þar sem þýtt er á fjölmörg tungumál í einu. Fyrr umfangsmeiri verkefni treystir stofan á öflugt net samstarfsmanna, fagmanna með langa reynslu af krefjandi þýðingum.

Meðal viðskiptavina Þýðingastofunnar í Reykjavík eru fjölmörg fyrirtæki, stofnanir, ráðuneyti sem og einstaklinar á Íslandi, í Belgíu, Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu , Japan, Kanada, Póllandi, Rússlandi, Spáni, Svíþjóð, Sviss, Tékklandi og Þýskalandi.

Fagleg sérfræðiþekking ásamt skynsamlegri nýtingu tækninnar eru forsendur gæðaþjónustu og ánægðra viðskiptavina.