|
|
|
|
|
|
Stofnun Einkahlutafélagið Þýðingastofan í Reykjavík var stofnað árið 2000 af tveimur starfandi þýðendum og veitir stofan alhliða tungumálaþjónustu einstaklingum, fyrirtækum og stofnunum í alþjóðasamskiptum.
Þekking og hæfni Þjónusta Þýðingastofunnar byggir á háskólanámi í tungumálum og víðtækri áratuga reynslu. Auk þekkingar og reynslu er beitt nútíma hugbúnaði og samskiptatækni til að vinna og senda texta. Trados þýðingahugbúnaðurinn sem stofan notar er sá útbreiddasti sinnar tegundar, en hann auðveldar samræmingu og eykur afköst.
Jafnvægi Fagleg sérfræðiþekking ásamt skynsamlegri nýtingu tækninnar eru forsendur gæðaþjónustu og ánægðra viðskiptavina.
Markmið Einu gildir hvert tungumálið er – markmið okkar er það sama og viðskiptavinarins: rétt orð á réttum stað!
Trúnaður Fullkomins trúnaðar er gætt. Þýðendur innanhúss eru löggiltir skjalþýðendur og dómtúlkar og því eiðsvarnir opinberir sýslunarmenn. Undirverktakar undirrita trúnaðaryfirlýsingu áður en þeir hefja störf fyrir Þýðingastofuna. |