|
|
|
|
|
|
Ehf. Þýðingastofan í Reykjavík leggur mikið upp úr gæðum þjónustu sinnar. Innra gæðaeftirlit stýrir sérhverju vinnuferli og þannig er tryggð nákvæmni og samræming. Grunnþættir gæðakerfis:
- þýðendur vinna yfir á sitt móðurmál eða lesa yfir þýðingar annarra á móðurmálið,
- reyndir ritstjórar kemba hverja þýðingu til að tryggja nákvæmni, samræmi og stílflutning,
- farið er yfir sérhvern texta innanhúss,
- þýðendur sem starfa með stofunni eru sérstaklega metnir, prófaðir og þjálfaðir áður en þeir fá að takast á við verkefni viðskiptavina.
Góð og rétt þýðing tekur ekki aðeins mið af viðteknum venjum og félagslegu umhverfi heldur þarf hún líka að endurspegla mismunandi áherslur á mismunandi sviðum tækni og menningar.
Þýðingastofan í Reykjavík eykur verðmæti vöru þinnar og þjónustu með réttri og góðri þýðingu. |